Pípulagningaþjónusta fyrir fyrirtæki og stærri verkefni

Benni Pípari sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir húsfélög, fasteignafélög, byggingaverktaka, fyrirtæki, sveitarfélög og opinbera aðila.
Við tökum að okkur allt frá reglulegu viðhaldi og bilanagreiningu til nýlagna, endurbóta og heildarlausna í stærri framkvæmdum.
Fyrir ólíkar þarfir og verkefni
Húsfélög og fasteignafélög
Reglubundið viðhald, bilanagreining og stærri endurbætur á lagnakerfum.
Byggingaverktakar
Nýlagnir, breytingar og heildarlausnir í nýbyggingum og framkvæmdum.
Fyrirtæki og atvinnuhúsnæði
Pípulagningaþjónusta fyrir verslanir, skrifstofur, iðnaðar- og þjónustuhúsnæði.
Sveitarfélög og opinberir aðilar
Þjónusta fyrir skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og aðrar opinberar byggingar.
Einnig tökum við að okkur
Slökkvikerfi
Lagnavinna við slökkvikerfi í nýbyggingum, breytingum og stærri framkvæmdum, með áherslu á vandaðan frágang.
Sérhæfð lagnaverkefni
Lausnir fyrir verkefni sem kalla á sérþekkingu, reynslu og gott samstarf fagaðila.
Stærri framkvæmdir
Nýlagnir, endurbætur og heildarlausnir í umfangsmeiri byggingar- og framkvæmdaverkefnum.
Reynsla sem skilar árangri
Benni Pípari sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki, húsfélög, fasteignafélög, byggingaverktaka, sveitarfélög og opinbera aðila. Við leggjum áherslu á áreiðanleika, góð samskipti og vandaðan frágang og vinnum í nánu samstarfi við verkkaupa, verktaka og aðra fagaðila þegar verkefnin kalla á það.
Fyrirtækjaþjónustan nær meðal annars yfir nýlagnir og endurlagnir, breytingar og endurbætur á lagnakerfum, reglubundið viðhald, bilanagreiningu, hitakerfi, frárennslislagnir, slökkvikerfi og önnur sérverkefni.
Traustur samstarfsaðili
Í gegnum árin höfum við þjónustað fjölda einstaklinga, fyrirtækja, fasteignafélaga og opinberra aðila.












Fagmennska, traust og góð þjónusta
Snyrtileg vinnubrögð
Reyndir fagmenn
Regluleg endurmenntun
Áreiðanleg þjónusta
Vantar þig traustan samstarfsaðila?
Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, breytingar eða stærra verkefni er velkomið að senda okkur upplýsingar um verkefnið. Við förum yfir málið og höfum samband.