Pípulagningaþjónusta á Suðurnesjum

Benni Pípari sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að pípulögnum fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki og verktaka.
Við tökum að okkur allt frá almennu viðhaldi og viðgerðum til nýlagna, hitakerfa, frárennslis og stærri framkvæmda. Við leggjum áherslu á vandaðan frágang, góð samskipti og lausnir sem henta verkefninu hverju sinni.
Heildarlausnir í pípulögnum
Hvort sem um er að ræða einfalda lagfæringu eða umfangsmikið pípulagnaverkefni getum við aðstoðað frá fyrstu greiningu til frágangs.
Þjónustan nær yfir helstu lagnakerfi heimila, fjölbýlishúsa og atvinnuhúsnæðis.
Viðgerðir & viðhald
Við sinnum lekum, bilunum, stíflum, blöndunartækjum, salernum, ofnum og almennu viðhaldi og endurbótum á pípulögnum. Markmiðið er að greina vandann og leysa hann á öruggan og skilvirkan hátt.
Nýlagnir & endurlagnir
Við tökum að okkur nýlagnir í nýbyggingum, breytingar á eldri kerfum og endurnýjun lagna sem hafa náð endingu sinni. Þar undir falla meðal annars neysluvatnslagnir og almenn lagnakerfi.
Hitakerfi & gólfhitakerfi
Við vinnum við hitaveitu, ofnalagnir, gólfhita, snjóbræðslulagnir, gólfhitastýringar og annan stjórnbúnað. Einnig sinnum við bilanagreiningu og notum hitamyndavél þegar það hjálpar við að finna vandamál í kerfinu.
Frárennsli & regnvatnslagnir
Við sinnum frárennslislögnum, drenlögnum, regnvatnskerfum, viðgerðum, endurnýjun og tengingum. Við höfum einnig aðgang að skolpmyndavél til að skoða ástand lagna þegar þörf er á.
Sérþjónusta og búnaður
Sum verkefni kalla á meiri greiningu eða sérhæfðan búnað.
Benni Pípari hefur aðgang að tækjum og búnaði sem hjálpa við að leysa verkefni hraðar og markvissar.
Hitamyndataka
Hitamyndavél getur hjálpað við að greina hitafrávik og vandamál í hitakerfum og lögnum án þess að þurfa að opna byggingarhluta að óþörfu.
Skolpmyndataka
Myndun frárennslislagna getur gefið betri mynd af stíflum, skemmdum eða ástandi lagna áður en ráðist er í viðgerð.
Minniháttar jarðvinna
Við sinnum minniháttar jarðvinnu vegna frárennslislagna og annarra lagna í jörðu þegar verkefnið kallar á það.
Pípulagningaþjónusta fyrir heimili og fyrirtæki
Benni Pípari þjónustar einstaklinga, húsfélög, fasteignafélög, byggingaverktaka, fyrirtæki, sveitarfélög og opinbera aðila. Verkefnin geta verið allt frá einföldum viðgerðum á heimili til viðhalds og breytinga á stærri lagnakerfum.
Fyrirtækið er með starfsstöð í Reykjanesbæ og sinnir pípulagningaþjónustu um Suðurnes, meðal annars í Reykjanesbæ (Keflavík, Njarðvík, Höfnum), Suðurnesjabæ (Garði, Sandgerði), Grindavík og Vogum.
Þegar lokað er fyrir heita vatnið
Haldið hita á fasteigninni
Mikilvægt er að halda hita á húsnæði þegar aðstæður kalla á það. Olíufylltir ofnar henta vel og rafmagnsofnar geta einnig komið að gagni, þó þeir geti verið orkufrekari.
Munið eftir inntaksrýminu
Það er ekki síður mikilvægt að halda nægum hita í inntaksrými hússins þar sem lagnir og annar búnaður geta verið viðkvæm fyrir kulda.
Hugið að snjóbræðslukerfum
Ef snjóbræðslukerfið er ekki lokað kerfi getur þurft að blása það út og dæla frostlegi á kerfið. Lokuð kerfi eiga almennt að vera útbúin þannig að hætta vegna frosts sé í lágmarki.
Traustur samstarfsaðili
Í gegnum árin höfum við þjónustað fjölda einstaklinga, fyrirtækja, fasteignafélaga og opinberra aðila.












Fagmennska, traust og góð þjónusta
Snyrtileg vinnubrögð
Reyndir fagmenn
Regluleg endurmenntun
Áreiðanleg þjónusta
Hvernig getum við aðstoðað?
Ef eitthvað þarf að laga eða vinna er fljótlegast að senda okkur verkbeiðni.
Þar getur þú lýst verkefninu og sent með myndir ef þarf, sem hjálpar okkur að undirbúa þjónustuna og bregðast hraðar við.