Frárennsli og regnvatnslagnir

Vel frágengið frárennsliskerfi er mikilvægt fyrir öruggan rekstur húsnæðis og lóðar.
Benni Pípari sinnir nýlögnum, viðgerðum, breytingum og bilanagreiningu á frárennslis-, dren- og regnvatnslögnum fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki og verktaka.
Þjónusta við frárennsli og lagnir
Frárennslislagnir
Nýlagnir, viðgerðir og breytingar á frárennslislögnum innan og utan húss fyrir bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Dren og regnvatn
Lagnir og endurbætur fyrir dren og regnvatn með það að markmiði að leiða vatn örugglega frá húsum og lóðum.
Myndun lagna - Ástandsskoðun
Myndun frárennslislagna með sérstakri myndavél til að meta ástand lagna, aðstoða við að staðsetja stíflur, skemmdir eða önnur vandamál.
Viðgerðir og endurnýjun
Viðgerðir á skemmdum lögnum og endurnýjun þegar eldri kerfi eru farin að valda endurteknum vandamálum eða eru ekki lengur samræmi við notkun og álag fasteignarinnar.
Þegar frárennslið virkar ekki sem skyldi
Hægt frárennsli, endurteknar stíflur, ólykt eða raki geta verið merki um að frárennslislagnir séu farnar að gefa sig. Ástæðan getur verið allt frá lélegri þéttingu, staðbundinni stíflu til skemmda, sigs eða annarra raskanna á lagnakerfinu.
Í stað þess að bregðast aðeins við sjáanlegum afleiðingum skiptir máli að komast að orsökinni. Benni Pípari sinnir greiningu og viðgerðum og metur hvort einföld aðgerð dugi eða hvort ástæða sé til að skoða lagnirnar nánar.
Skolpmyndavél hjálpar við að greina vandann
Með skolpmyndavél sem er rennt inn í lögnina getum við bæði séð og staðsett vandamálið án þess að opna lagnaleiðina að óþörfu.
Myndataka getur meðal annars hjálpað til við að finna stíflur, brot, skemmdir eða önnur frávik í lögninni. Myndatakan getur sparar tíma og gefið skýra mynd af því hvernig best sé að bregðast við.
Þetta getur verið sérstaklega gagnlegt þegar sömu vandamál koma ítrekað upp eða óljóst er hvar vandinn liggur.
Dren og regnvatn meðfram húsi
Vandaður frágangur á dren- og regnvatnslögnum er lykilatriði við að verja fasteign gegn raka og vatnstjóni. Dren- og regnvatnslagnir þurfa að leiða vatn frá grunni og lóð á öruggan hátt, vera lagðar með réttum halla og vönduðum frágangi.
Við tökum að nýjar lagnir, breytingar og viðgerðir á dren- og regnvatnskerfum, meðal annars í tengslum við endurbætur, viðbyggingar eða önnur jarðvinnuverkefni.
Minniháttar jarðvinna
Í verkefnum sem tengjast frárennsli, dreni og öðrum lögnum í jörðu getur þurft að grafa að lögnum eða vinna minni jarðvinnu samhliða pípulögnunum.
Benni Pípari getur tekið að sér minniháttar jarðvinnu þegar hún tengist verkefninu og þannig einfaldað framkvæmdina og samræmt fleiri verkþætti innan sama verkefnis.
Nýlagnir og endurnýjun eldri frárennsliskerfa
Í eldri fasteignum geta frárennslislagnir verið komnar á þann aldur að viðgerðir verða sífellt tíðari. Þá getur verið hagkvæmara til lengri tíma að endurnýja hluta kerfisins eða leggja nýjar lagnir.
Við breytingar á húsnæði, viðbyggingar eða nýbyggingar getur jafnframt þurft að færa, bæta við eða endurskipuleggja frárennslislagnir. Þá skiptir góð skipulagning miklu máli svo kerfið virki rétt og auðvelt sé að þjónusta það síðar.
Fyrir heimili, húsfélög og framkvæmdir
Við sinnum frárennslis- og regnvatnsverkefnum fyrir einstaklinga, húsfélög, fasteignafélög, fyrirtæki og byggingaverktaka. Verkefnin geta verið allt frá afmarkaðri viðgerð eða myndun á lögn upp í nýtt frárennsliskerfi tengt stærri framkvæmd.
Í umfangsmeiri verkefnum vinnum við með verkkaupum og öðrum fagaðilum eftir þörfum.
Þjónusta á Suðurnesjum
Benni Pípari sinnir frárennslis-, dren- og regnvatnslögnum víða á Suðurnesjum. Ef þú ert að glíma við stíflu, grunar bilun eða ert að skipuleggja nýjar lagnir er einfaldast að senda okkur verkbeiðni með upplýsingum um verkefnið.
Traustur samstarfsaðili
Í gegnum árin höfum við þjónustað fjölda einstaklinga, fyrirtækja, fasteignafélaga og opinberra aðila.












Fagmennska, traust og góð þjónusta
Snyrtileg vinnubrögð
Reyndir fagmenn
Regluleg endurmenntun
Áreiðanleg þjónusta
Vantar þig traustan pípara?
Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, breytingar eða stærra verkefni er velkomið að senda okkur upplýsingar um verkefnið. Við förum yfir málið og höfum samband.