Skip to main content

Benni Pípari

Viðgerðir & viðhald

Viðgerðir og viðhald pípulagna

Viðgerðir og viðhald pípulagna

Lekar, stíflur, bilanir eða búnaður sem þarf að endurnýja? 

Benni Pípari sinnir almennum viðgerðum og viðhaldi pípulagna fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki og sveitarfélög.

Við leggjum áherslu á að greina vandann, finna hentuga lausn og skila verkinu snyrtilega frá okkur.

Algengar viðgerðir og viðhald

Lekar og bilanir

Greining og viðgerð á lekum, biluðum lögnum og öðrum vandamálum í lagnakerfum.

Blöndunartæki og salerni

Viðgerð, skipti og uppsetning á blöndunartækjum, salernum og öðrum hreinlætistækjum.

Stíflur og frárennsli

Aðstoð við stíflur og vandamál í frárennslislögnum ásamt bilanagreiningu þar sem þörf er á.

Ofnar og hitakerfi

Viðgerð og viðhald á ofnum, hitaveitugrindum og öðrum þáttum hitakerfa, ásamt bilanagreiningu og yfirferð þegar kerfið virkar ekki sem skyldi.

Við finnum orsökina – ekki bara einkennin

Við finnum orsökina – ekki bara einkennin

Þegar bilun kemur upp í pípulögnum skiptir máli að finna orsök vandans áður en ráðist er í viðgerð. Við skoðum lagnakerfið, metum ástandið og leggjum til lausn sem hentar aðstæðum hverju sinni.

Benni Pípari hefur reynslu af fjölbreyttum viðhalds- og viðgerðarverkefnum, allt frá minni bilunum á heimilum til viðhalds og bilanagreiningar í stærri fasteignum og atvinnuhúsnæði.

Við nýtum hitamyndavél til bilanagreiningar þegar þörf krefur. Hitamyndavél getur meðal annars nýst við að kortleggja lagnir, greina frávik og rekja bilun í hitakerfum og lögnum án þess að þurfa t.d. að opna veggi eða gólf að óþörfu.

Reglulegt viðhald getur komið í veg fyrir stærri vandamál

Reglulegt eftirlit og viðhald lagnakerfa getur komið í veg fyrir leka, vatnstjón og fleiri kostnaðarsamar viðgerðir.

Við sinnum bæði einstökum viðhaldsverkefnum ásamt reglulegri þjónustu fyrir húsfélög, fasteignafélög, fyrirtækjum og bæjarfélögum. Ef eldri lagnir eru farnar að kalla á endurteknar viðgerðir getum við jafnframt metið hvort hagkvæmara sé að endurnýja hluta kerfisins eða ráðast í endur lögn.

Reglulegt viðhald getur komið í veg fyrir stærri vandamál
Pípulagningaþjónusta á Suðurnesjum

Pípulagningaþjónusta á Suðurnesjum

Benni Pípari er með starfsstöð í Reykjanesbæ og sinnir viðgerðum og viðhaldi pípulagna um Suðurnes, meðal annars í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum.

Ef eitthvað þarf að laga eða vinna er fljótlegast að senda okkur verkbeiðni. Þar getur þú lýst verkefninu og sent með myndir ef þarf, sem hjálpar okkur að undirbúa þjónustuna og bregðast hraðar við.

Viðskiptavinir

Traustur samstarfsaðili

Í gegnum árin höfum við þjónustað fjölda einstaklinga, fyrirtækja, fasteignafélaga og opinberra aðila.

Af hverju Benni Pípari?

Fagmennska, traust og góð þjónusta

Snyrtileg vinnubrögð

Reyndir fagmenn

Regluleg endurmenntun

Áreiðanleg þjónusta

Viðgerðir & viðhald

Hafðu samband við okkur

Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, breytingar eða stærra verkefni er velkomið að senda okkur upplýsingar um verkefnið. Við förum yfir málið og höfum samband.