Reynsla, vönduð vinnubrögð og góð þjónusta

Benni Pípari ehf. var stofnað árið 2007 af Benedikt G. Jónssyni pípulagningameistara, sem er framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækisins.
Frá upphafi hefur áherslan verið á vandaðan frágang, snyrtimennsku og góð samskipti. Í dag starfar hjá fyrirtækinu 10 manna teymi með mikla reynslu af fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki, verktaka og opinbera aðila.
Traust þjónusta fyrir stór og smá verkefni
Benni Pípari hefur komið að fjölbreyttum verkefnum í gegnum árin, allt frá almennu viðhaldi og viðgerðum á heimilum til nýlagna, endurbóta og stærri framkvæmda fyrir fyrirtæki og opinbera aðila.
Við vinnum fyrir einstaklinga, húsfélög og fasteignafélög, byggingaverktaka, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. Verkefnin eru ólík að umfangi en nálgunin sú sama: að finna góða lausn, vinna verkið vel og skila því snyrtilega frá okkur.
Fyrirtækið tekur að sér verkefni bæði sem aðalverktaki og undirverktaki og vinnur náið með öðrum fagaðilum þegar verkefnin kalla á það.

2007
Benni pípari ehf. stofnað
10-12 manna teymi
Reynsla af fjölbreyttum verkefnum
Löggiltur verktaki
Ábyrg og vönduð vinnubrögð
2023–2026
Framúrskarandi fyrirtæki
Góð vinnubrögð sjást í fráganginum
Þekking og reynsla starfsfólksins er einn mikilvægasti styrkur Benna Pípara. Við leggjum áherslu á að starfsfólkið fylgist með þróun í faginu og sæki reglulega endurmenntun svo hægt sé að veita góða ráðgjöf og vinna með þær lausnir og kerfi sem notuð eru í dag.
Snyrtimennska hefur frá upphafi verið stór hluti af vinnubrögðum fyrirtækisins. Það á bæði við um framkvæmd verksins, umgengni á verkstað og endanlegan frágang.
Við leggjum jafnframt áherslu á að nota vönduð efni og búnað frá viðurkenndum framleiðendum og birgjum.
Árangur sem við erum stolt af
Benni Pípari hefur hlotið viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki 2023–2026 og er jafnframt Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026.
Við lítum á þessar viðurkenningar sem staðfestingu á þeirri áherslu sem hefur verið lögð á traustan rekstur, ábyrg vinnubrögð og stöðugleika í gegnum árin.


Benedikt G. Jónsson

Benedikt G. Jónsson stofnaði Benna Pípara árið 2007 og hefur stýrt fyrirtækinu frá upphafi. Hann starfar sem pípulagningameistari og framkvæmdastjóri og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í gegnum árin.
Rætur á Suðurnesjum
Benni Pípari er með aðsetur að Bolafæti 9 í Reykjanesbæ og sinnir verkefnum víða á Suðurnesjum. Fyrirtækið hefur í gegnum árin byggt upp sterk tengsl við einstaklinga, fyrirtæki, verktaka og opinbera aðila á svæðinu.
Við viljum vera aðgengileg, áreiðanleg og auðveld í samskiptum — hvort sem um er að ræða lítið viðhaldsverkefni eða umfangsmeiri framkvæmd.
Hvernig getum við aðstoðað?
Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, breytingar eða stærra verkefni er velkomið að senda okkur upplýsingar um verkefnið. Við förum yfir málið og höfum samband.