Skip to main content

Benni Pípari

VERKBEIÐNI

Sendu okkur verkbeiðni

Fljótlegasta leiðin til að koma verkefni í vinnslu hjá Benna Pípara er að senda inn verkbeiðni.

Þá skráist verkefnið strax hjá okkur ásamt þeim upplýsingum sem við þurfum til að geta farið yfir málið og skipulagt næstu skref.

Lýstu verkefninu eins vel og þú getur og settu inn myndir ef þær geta hjálpað til við að sýna vandamálið eða aðstæður á staðnum. Góðar upplýsingar og skýrar myndir geta hjálpað okkur að undirbúa verkið betur, til dæmis með því að taka með rétta varahluti eða búnað. Það getur stytt verktímann og gert þjónustuna skilvirkari.

Þegar verkbeiðnin hefur verið send er hún komin í röð hjá okkur og við höfum samband við fyrsta tækifæri.

Ef um er að ræða neyðartilvik eða eitthvað áríðandi þá er best að fylgja verkbeiðni eftir með símtali – 843 6025